top of page

Fagurbleikar vatnaliljur

Sex ára dóttir mín sat íbyggin og myndskreytti blað. Þriggja ára systir hennar kom aðvífandi og krotaði yfir teikninguna. Sú er eilítið skass, með heilmikinn einbeittan brotavilja. Uppátækið kom vandvirki eldri systur í uppnám. Teikningin þótti nú eyðilögð. Sjálfsvorkun stóð yfir nokkra stund þar til stúlkunni varð skyndilega ljóst að krotinu mætti hæglega breyta í fagurbleikar vatnaliljur – aðeins með örlítið breyttum útlínum.


Efnahagslegar afleiðingar COVID-19 hafa verið fólki og fyrirtækjum áfall. Heimilin hafa misst afkomuna, fólk hefur orðið fyrir heilsutjóni og fyrirtæki róa lífróður. Síðustu vikur hafa sviðsmyndir breyst og efnahagslægðin dýpkað. Nú mæðir á Reykjavíkurborg að tryggja ábyrgar og raunhæfar aðgerðir.


Síðustu misseri hefur atvinnulausum fjölgað verulega og treysta nú ríflega 50% allra fullorðinna á framfærslu ríkisins. Eitt mikilvægasta verkefnið framundan verður uppbygging og endurheimt starfa í þróttmiklu atvinnulífi. Tryggja þarf áframhaldandi húsnæðisuppbyggingu með auknu svigrúmi og áfangaskiptum greiðslum á byggingamarkaði. Rekstur nýrra leikskóladeilda mætti bjóða út og gefa einkaframtaki tækifæri til samfélagslegrar verðmætasköpunar. Ráðast mætti í atvinnuskapandi uppbyggingu á upphituðum göngu- og hjólastígum. Tækifærin leynast víða.


Létta þarf álögum af fólki og fyrirtækjum. Með einföldum aðgerðum má lækka orkureikninga heimilanna. Fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði þarf að lækka strax. Láta þarf af samkeppnisrekstri borgarinnar og selja hvoru tveggja, Gagnaveituna og Malbikunarstöðina Höfða. Jafnframt má hefja viðræður við stærstu vinnustaði borgarinnar um sveigjanlegri vinnutíma svo létta megi á umferðarálagi.


Við bregðumst við áföllum en eygjum jafnframt tækifærin. Af krafti má rísa úr krefjandi aðstæðum. Á botni djúprar efnahagslægðar verða framtak og framfarir að eiga öfluga viðspyrnu. Aðstæðurnar eru óvæntar, en við munum komast í gegnum þær. Ef við aðeins drögum fagrar útlínur um erfiðar aðstæður – má eflaust, einhvers staðar við sjóndeildarhringinn, greina fagurbleikar vatnaliljur.


Hildur Björnsdóttir

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins





Comments


bottom of page